Um Sætar Syndir
Upphafið að Sætum Syndum má rekja til þess þegar ég eignaðist drenginn minn. Í kjölfarið kviknaði áhugi minn á kökuskreytingum, ekki síst í tengslum við afmælin hans.Áhugamálið vatt fljótt upp á sig og ég spreytti mig stöðugt á flóknari og viðameiri kökuskreytingum um leið og færnin við skreytingarnar jókst. Þannig hófst ævintýrið því ég áttaði mig fljótt á að það var mikil eftirspurn eftir persónulegum kökum og í raun vöntun á markaðnum.Ein hrærivél og bakarofn var tækjakosturinn í upphafi en nú eru Sætar Syndir stærsta fyrirtækið í landinu í sérskreyttum kökum. Ég var ekki lengur ein í þessu heldur réði til mín afskaplega gott starfsfólk, sem fjölgaði eftir því sem umfangið jókst. Árið 2017 opnuðum við kökubúð í Hlíðasmára 19. Þar geta viðskiptavinir ávallt gengið að ljúffengum, fallegum og litríkum kökum sem gleðja bragðlauka ekki síður en augað.
Eva María Hallgrímsdóttir, stofnandi Sætra Synda
Markmið okkar
Við notum einungis hágæðahráefni og leggjum mikið upp úr að kökurnar bragðist eins vel og útlitið gefur til kynna. Allt bakað á staðnum og bakað af ást um umhyggju.
pantanir@saetarsyndir.is 583 0061