Lífið er núna
Gómsæt kaka til styrktar Krafti – styrktu gott málefni með smá Sætum Syndum 

25% af hverri seldri köku rennur til Krafts.
6-8 manna kaka á 7.990 krónur og val um þrjár bragðtegundir.
Þann 30. janúar nk ætlar Kraftur að fagna Lífið er núna deginum. Tilgangur dagsins er að minna fólk á að staldra aðeins við njóta líðandi stundar og gefa sér tíma. Einnig er tilvalið að nýta daginn og láta gott af sér leiða, hrósa fólki og sjálfum sér. Nota spari- stellið og peysuna sem þú ætlaðir alltaf að nota við ákv. tilefni.
Ekki bíða eftir mómentinu, búðu það til á Lífið er núna daginn.