Skírn eða nafnaveisla barnsins er hátíðleg stund og við viljum hjálpa þér að gera veisluna enn eftirminnilegri með dásamlegri skírnarköku.
Þú velur stærð kökunnar og bragð.
Ef þú vilt að við skrifum nafn barnsins þá skrifarðu það inn í viðeigandi reiti. Vinsamlegast athugið að lengd nafnsins getur ekki verið meira en
átta stafir ef það á að komast fyrir framan á kökuna. Ef nafnið er lengra getum við komið því fallega fyrir á nafnaplatta.
Í athugasemdir geturðu sett annað sem þú vilt koma á framfæri þegar þú pantar skírnarköku handa barninu þínu.